17. feb. 2022

Yfirlit kynninga grunnskóla í Garðabæ vegna innritunar fyrir haustið 2022

Innritun nemenda í 1.bekk (f. 2016) og 8. bekk (f. 2009) fer fram dagana 7.-11. mars nk. Grunnskólarnir í Garðabæ bjóða í heimsókn og verða með opin hús/kynningar í húsnæði skólanna. Gestum gefst þá kostur á að skoða skólana í fylgd starfsmanna og/eða nemenda.

  • Innritun í grunnskóla

Innritun nemenda í 1.bekk (f. 2016) og 8. bekk (f. 2009) fer fram dagana 7.-11. mars nk. Innritað er á þjónustugátt Garðabæjar. Athugið að nauðsynlegt er að innrita nemendur í 8. bekk sem skipta um skóla. Innritun lýkur 11. mars nk.
Grunnskólarnir í Garðabæ bjóða í heimsókn og verða með opin hús/kynningar í húsnæði skólanna. Gestum gefst þá kostur á að skoða skólana í fylgd starfsmanna og/eða nemenda. Allir grunnskólarnir bjóða foreldrum og forráðamönnum einnig að koma í heimsóknir á öðrum tíma. Vinsamlegast hafið samband við skrifstofu skólanna sé óskað eftir því. Foreldrar og forráðamenn eru hvattir til að skoða vefsíður skólanna. Þar má finna gagnlegar upplýsingar og margskonar fróðleik um skólastarfið.


OPIÐ HÚS FYRIR FORELDRA OG FORRÁÐAMENN VÆNTANLEGRA NEMENDA Í 1.B. EÐA 8.B. VERÐA Á EFTIRFARANDI TÍMUM:

ALÞJÓÐASKÓLINN

Foreldrar og forráðamenn er ávallt velkomnir á þeim tíma sem hentar þeim best en nauðsynlegt er
að hafa samband á undan til að bóka kynningu og leiðsögn um skólann.
Sími: 690-3100
Internationalschool.is

ÁLFTANESSKÓLI

Opið hús/kynning verður fimmtudaginn 10. mars, kl: 17:00-18:00
S. 540 4700, netfang: alftanesskoli@alftanesskoli.is
alftanesskoli.is

BARNASKÓLI HJALLASTEFNUNNAR

Opið hús/kynning verður mánudaginn 7. mars kl: 17:00-18:00
S. 555 7710, netfang: barnaskolinngbr@hjalli.is
bskgbr.hjalli.is

FLATASKÓLI

Opið hús/kynning verður fimmtudaginn 3. mars kl: 17:00-18:00
S. 513 3500, netfang: flataskoli@flataskoli.is
flataskoli.is

GARÐASKÓLI

Opið hús/kynningar verða miðvikudaginn 9. mars, kl: 17:00–18:00 og 20:00-21:00
S. 590 2500, netfang: gardaskoli@gardaskoli.is
gardaskoli.is

HOFSSTAÐASKÓLI

Opið hús/kynningar verða miðvikudaginn 9. mars, kl: 17:30 –18 :15
S. 590 8100, netfang: hskoli@hofsstadaskoli.is
hofsstadaskoli.is

SJÁLANDSSKÓLI

Opið hús/kynningar verða þriðjudaginn 8. mars, kl: 16:00-18:30
Kynningar fyrir 1. og 8. bekk fara fram á sama tíma.
S. 590 3100, netfang: sjalandsskoli@sjalandsskoli.is
sjalandsskoli.is

URRIÐAHOLTSSKÓLI

Opið hús/kynningar verða föstudaginn 4. mars, kl: 17:00–18:00
S. 591 9500, netfang: urriðaholtsskoli@urridaholtsskoli.is
urridaholtsskoli.is