Nemendur Sjálandsskóla rýna í heimsmarkmiðin
Í Sjálandsskóla komu fram áhugaverðar pælingar í vinnu nemenda um heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna.
Nemendur svöruðu spurningum á hverjum degi og var afraksturinn hengdur upp á glervegg við bókasafnið.
Eins og sjá má á myndunum höfðu nemendur margt um málið að segja þegar þeir veltu fyrir sér spurningum eins og:
Hvað er nóg?
Hvað ef allir hefðu sömu tækifæri?
Hvað get ég gert?
Hér á vef Sjálandsskóla má finna fréttina og fleiri myndir af vinnu nemenda