Undirmarkmið Garðabæjar

Öruggt húsnæði á viðráðanlegu verði

11.1

Eigi síðar en árið 2030 geti allir orðið sér úti um fullnægjandi og öruggt húsnæði á viðráðanlegu verði, fátækrahverfi verði endurbætt og grunnþjónusta standi öllum til boða.

Öruggar og sjálfbærar samgöngur

11.2

Eigi síðar en árið 2030 geti allir ferðast með öruggum sjálfbærum samgöngutækjum á viðráðanlegu verði á bættu vegakerfi. Lögð verði áhersla á betri almenningssamgöngur sem taka mið af fólki í viðkvæmri stöðu, konum, börnum, fötluðu fólki og öldruðum.

Sjálfbær fjölgun í þéttbýli og meiri þátttaka í skipulagsmálum

11.3

Eigi síðar en árið 2030 verði fjölgun í þéttbýli sjálfbær og íbúar alls staðar í heiminum taki meiri þátt í skipulagsmálum og samkomulagi um sjálfbærni.

Vernda náttúru- og menningararfleifð

11.4

Blásið til sóknar til þess að vernda og tryggja náttúru- og menningararfleifð heimsins.

Draga úr skaðlegum umhverfisáhrifum í borgum

11.6

Eigi síðar en árið 2030 verði dregið úr skaðlegum umhverfisáhrifum í borgum, meðal annars með því að bæta loftgæði og meðhöndlun úrgangs.

Tryggja aðgengi að öruggum grænum svæðum

11.7

Eigi síðar en árið 2030 verði græn svæði gerð örugg og aðgengileg fyrir almenning, einkum konur og börn, aldraða og fatlað fólk.

Styrkja áætlanir um byggðaþróun

11.A

Stutt verði við jákvæð efnahags-, félags- og umhverfisleg tengsl milli þéttbýlis, þéttbýlla svæða í borgarjaðri og dreifbýlissvæða með því að styrkja áætlanir um byggðaþróun á landsvísu og innan svæða


Engin grein fannst.