Innritun í grunnskóla
Í Garðabæ velja foreldrar skóla fyrir barn sitt og bera ábyrgð á að innrita barnið í þann skóla sem þeir velja.
Í Garðabæ velja foreldrar skóla fyrir barn sitt og bera ábyrgð á að innrita barnið í þann skóla sem þeir velja.
Skólarnir sem innrita börn í 1. bekk kynna starf sitt fyrir foreldrum verðandi grunnskólanemenda í febrúar/mars ár hvert. Einnig fer fram kynning fyrir nemendur sem eru að fara í 8. bekk og foreldra þeirra á þeim kostum sem nemendur í Garðabæ hafa á efsta stigi grunnskóla.
Skólaskylda hefst að jafnaði á því ári sem barn verður sex ára. Reglur Garðabæjar varðandi óskir um að flýta eða seinka upphafi grunnskólagöngu.
Innritun í grunnskóla er rafræn og er í gegnum Island.is. Innritun í grunnskóla í Garðabæ fyrir skólaárið 2026-2027 fer fram dagana 2.-10. mars 2026. Rafræn umsókn á Island.is fyrir skóla í Garðabæ opnar 25. febrúar nk. og þá verður settur hlekkur hér beint á umsóknina.
ATH Vegna innritunar nemenda á vorönn 2026 skal hafa samband við skrifstofu þess grunnskóla sem barnið á að innritast í til að fá nánari leiðbeiningar.
Hér má lesa reglur Garðabæjar um myndatöku, myndbandsupptökur og birtingu myndefnis og hér má lesa um notkun upplýsingatækni í grunnskólastarfi.
