Eldri texti : Barnavernd

Börn eru börn samkvæmt lögum fram að 18 ára aldri

 

 Til barna og unglinga!

Ef þú ert barn eða unglingur og þarft aðstoð eða hefur áhyggjur af því hvernig einhver annar hefur það, þá getur þú alltaf hringt í númer Neyðarlínunnar sem er 112!
Ef þú hefur áhyggjur getur þú líka hringt í 1717 hjálparsíma Rauða krossins eða haft samband við netspjallið í 1717.is. 

Þú getur líka haft samband beint við starfsmenn barnaverndar Garðabæjar á opnunartíma þjónustuvers Garðabæjar í síma 525 8500 eða með því að senda t-póst á barnavernd@gardabaer.is.   Utan opnunartíma, á kvöldin og um helgar, er hægt að fá samband við bakvakt barnaverndar í gegnum Neyðarlínuna 112.

 

 

 

 Til almennnings!

Hafir þú áhyggjur af barni þá er einfaldasta leiðin að tilkynna það í númer Neyðarlínunnar, 112, sem tekur við tilkynningum fyrir barnaverndarnefndir og kemur þeim áfram. Barnaverndarnefndir eru með bakvaktir allan sólarhringinn og geta alltaf gripið inn í ef þörf er á.
Þá má líka haft samband beint við starfsmenn barnaverndar Garðabæjar á opnunartíma þjónustuvers Garðabæjar í síma 525 8500 eða með því að senda t-póst á barnavernd@gardabaer.is . Utan opnunartíma, á kvöldin og um helgar, er hægt að fá samband við bakvakt barnaverndar í gegnum Neyðarlínuna 112.

 

Markmið barnaverndarlaga nr. 80/2002 er að tryggja að börn sem búa við óviðunandi aðstæður eða börn sem stofna heilsu sinni og þroska í hættu fái nauðsynlega aðstoð með því að styrkja uppeldishlutverk fjölskyldunnar og beita úrræðum til verndar einstökum börnum þegar það á við. Börn eru börn samkvæmt lögum fram að 18 ára aldri.

Hver sá sem tilkynnir til barnaverndarnefndar skal segja á sér deili. Almenningur getur óskað nafnleyndar gagnvart öðrum en barnaverndarnefnd og starfsmönnum barnaverndar.

Mál einstakra barna og fjölskyldna þeirra berast ýmist þannig að fólk leitar eftir aðstoð eða að almenningur og aðilar sem vinna með börnum tilkynna að grunur leiki á að barni sé misboðið, aðbúnaði þess áfátt, uppeldi þess vanrækt að öðru leyti eða að það stofni heilsu sinni og þroska í hættu.

Í barnaverndarlögum eru lagðar þær skyldur á almenning og þá sem afskipti hafa af börnum starfa sinna vegna að tilkynna um slíkan grun til barnaverndarnefndar.

Barnaverndartilkynning

Öllum er skylt að tilkynna til barnaverndarnefndar ef þeir hafa ástæðu til að ætla að barn:

  • búi við óviðunandi uppeldisaðstæður
  • verði fyrir ofbeldi eða annarri vanvirðandi háttsemi eða
  • stofni heilsu sinni og þroska í alvarlega hættu.

Einnig skal tilkynna ef grunur er um að refsiverður verknaður hafi verið framinn gegn barni eða af því.

Tilkynningar og fyrirspurnir

Starfsmenn Barnaverndarnefndar Garðabæjar, Garðatorgi 7, taka við tilkynningum um börn búsett í Garðabæ vegna gruns um vanrækslu, ofbeldi eða áhættuhegðun barna og ungmenna. Tilkynning til barnaverndarnefndar er ekki kæra heldur fremur beiðni um aðstoð fyrir viðkomandi barn eða fjölskyldu sem tilkynnandi telur að sé hjálparþurfi.

Starfsmenn barnaverndar á fjölskyldusviði taka við almennum tilkynningum og fyrirspurnum á afgreiðslutíma bæjarskrifstofu Garðabæjar í síma 525 8500.

Eftir lokun skrifstofu og um helgar sinnir sameiginleg bakvakt barnaverndar Garðabæjar, Kópavogs og Hafnarfjarðar, neyðartilvikum vegna barna sem þar eru búsett. Sími bakvaktar er 112.

Stuðningsúrræði

Stuðningsúrræði barnaverndar eru meðal annars ýmis sérfræðiþjónusta, viðtöl hjá félagsráðgjafa barnaverndar, persónulegir ráðgjafar, tilsjón og stuðningsfjölskyldur ásamt úrræðum sem sótt er um hjá Barnaverndarstofu. Ætíð er lögð áhersla á samvinnu við foreldra.

Barnaverndarlög