• 19.9.2020, 12:00 - 17:00, Hönnunarsafn Íslands

100% ULL - ný sýning í Hönnunarsafni Íslands

  • 100% ULL í Hönnunarsafni Íslands

Velkomin á sérstakan OPNUNARDAG í Hönnunarsafni Íslands 19. september milli kl. 12 -17

OPNUNARDAGUR - 100% ULL
19. september 2020
Velkomin á sérstakan OPNUNARDAG 19. september milli kl. 12 -17 í Hönnunarsafni Íslands við Garðatorg.

Ull er klassískur, náttúrulegur efniviður með óendanlega möguleika. Á sýningunni getur að líta dæmi um vörur úr íslenskri ull sem hönnuðir og handverksfólk er að fást við í dag. Þátttakendur sýningarinnar koma frá ólíkum sviðum hönnunar og handverks en eiga það sameiginlegt að vinna af hugvitssemi með íslensku ullina í sínum afurðum. 

Þátttakendurnir eru: Ásthildur Magnúsdóttir, vefari; Magnea Einarsdóttir, fatahönnuður; verslunin Kormákur & Skjöldur; fyrirtækið Kula by Bryndís, sem sérhæfir sig í hljóðvistarlausnum; samstarfsverkefnið Ró, sem framleiðir meðal annars dýnur og ullarvinnslufyrirtækið Ístex. 

Sýningin stendur frá 19. september til 15. nóvember.

Vefur Hönnunarsafns Íslands.

Viðburður á fésbókarsíðu safnsins.