• 17.6.2019, 10:00, Garðatorg - miðbær

17. júní í Garðabæ

  • 17. júní hátíðarhöld í Garðabæ

Dagskráin fyrir 17. júní í Garðabær er spennandi líkt og síðustu ár.

Dagskráin fyrir 17. júní í Garðabær er spennandi líkt og síðustu ár.

Morgundagskrá

 

Golfvöllur við Haukshús

kl. 10:00. 17. júnímót Golfklúbbs Álftaness. Keppt verður í flokki 15 ára og eldri og 14 ára og yngri. Skráning í mótið fer fram á staðnum og hefst klukkan 9:30.

 

Sund í Álftaneslaug

Frítt í sund fyrir Garðbæinga. Opið kl. 10:00 - 14:00.

 

Vífilsstaðavatn, allan daginn

Ókeypis veiði fyrir alla Garðbæinga við suðurbakka vatnsins og á bryggju.

Hönnunarsafn Íslands

kl. 12- 17. Opið í Hönnunarsafni Íslands á Garðatorgi 1.

Ókeypis aðgangur í tilefni dagsins.

Bókasafn Garðabæjar á Garðatorgi

Opið frá kl. 13-17.

Hátíðardagskrá

Safnaðarheimili Bessastaðasóknar kl. 10:00

Helgistund í safnaðarheimilinu, Brekkuskógum 1.

 

Skrúðganga leggur af stað kl. 10:15

Gengið frá Brekkuskógum að hátíðarsvæði við Álftaneslaug.

Fánaborg í umsjón Skátafélagsins Svana.

Blásarasveit Tónlistarskóla Garðabæjar spilar.

 

Á hátíðarsviði á Álftanesi kl. 10:35 – 11:20

Setning – formaður íþrótta- og tómstundaráðs

Fjallkona

Karma Brigade

Skoppa og Skrítla

Á hátíðarsvæði á Álftanesi kl. 10:35 - 11:40

Hoppukastalar – Kandíflos - Sölutjöld

 

Vídalínskirkja kl. 13:15

Hátíðarstund í Vídalínskirkju.

Nýstúdent Guðrún Kristín Kristinsdóttir flytur ávarp.

 

Skrúðganga leggur af stað kl. 14:00

Gengið frá Vídalínskirkju, eftir Hofsstaðabraut, Karlabraut og Vífilsstaðavegi að hátíðarsvæði við Garðatorg.

Fánaborg í umsjón Skátafélagsins Vífils.

Blásarasveit Tónlistarskóla Garðabæjar spilar.

 

Á hátíðarsviði á Garðatorgi kl. 14:30- 16:00

Ávarp forseta bæjarstjórnar

Fjallkona

Karma Brigade

Sirkus Ísland

Herra Hnetusmjör

Skoppa og Skrítla

 

Á hátíðarsvæði á Garðatorgi kl. 15:00 - 16:30

Hoppukastalar - Stultur og leikföng – Sölutjöld - Kandíflos

Kaffihlaðborð í Sveinatungu kl. 14:00 - 16:30

Árlegt kaffihlaðborð Kvenfélags Garðabæjar í Sveinatungu, nýrri fjölnota aðstöðu, á Garðatorgi 7.

 

Hátíðartónleikar í Kirkjuhvoli, safnaðarheimili Vídalínskirkju kl. 20:00

Salon Islandus-kvartettinn og Hanna Dóra Sturludóttir mezzosópran flytja vinsæl Vínarlög, aríur, dúetta, valsa og aðra létta tónlist.

 

Aðgangur er ókeypis í boði Garðabæjar og allir hjartanlega velkomnir.

ATH! Börn eru á ábyrgð foreldra í allri dagskrá

Dagskráin í pdf-skjali