Viðburðir

Samgönguvika 16. -22. september 2022

Evrópsk samgönguvika verður haldin dagana 16.-22. september 2022. 16.9.2022 - 22.9.2022 Garðabær

Evrópsk samgönguvika verður haldin dagana 16.-22. september 2022. Samgönguvika er evrópskt átak um bættar samgöngur í borgum og bæjum. Markmið vikunnar er að hvetja fólk til umhugsunar um eigin ferðavenjur og virkja það til að nota almenningssamgöngur, hjóla eða ganga. Garðabær tekur þátt í samgönguvikunni sem fyrr ásamt sveitarfélögum víðs vegar um allt land.

Lesa meira
 
Íbúafundir í Garðabæ - Hvað finnst þér?

Hvað finnst þér? Samtal um bæinn okkar - íbúafundur á Álftanesi 21.9.2022 19:30 - 21:00 Álftanesskóli

Samtal um bæinn okkar - íbúafundir í september 2022 með bæjarstjóra og sviðsstjórum Garðabæjar. Þriðji fundur verður haldinn miðvikudaginn 21. september kl. 19:30 í Álftanesskóla.

Lesa meira