• 28.12.2025, 13:00, Hönnunarsafn Íslands

Áramótahattagerð með Hage Studio

Smiðjan er hluti af mánaðarlegri fjölskyldudagskrá Hönnunarsafns Íslands. Aðgangur er ókeypis og opinn öllum.

Hvernig áramótahatt ætlar þú að hafa á höfðinu þegar þú kveður árið 2025 og stígur inn í nýja árið 2026?! Verður formið keilulaga, kringlótt eða kassalaga eins og pípuhattur? Verður efnið glansandi eða matt, skreytt borðum eða kögri?

Áramótahattasmiðjan er orðin árviss hefð á Hönnunarsafninu. Hún er leidd af hattagerðameisturunum Önnu Gullu og Harper sem mynda hönnunarteymið Hage Studio. Þau sérhæfa sig í hönnun og handverki hatta, með áherslu á náttúrulegan efnivið. Hage eru með bækistöðvar sínar í Kölingared í Svíþjóð og Reykjavík.

Smiðjan er hluti af mánaðarlegri fjölskyldudagskrá Hönnunarsafns Íslands. Aðgangur er ókeypis og opinn öllum.