• 27.10.2020

Bangsadagurinn - bangsagetraun Bókasafns Garðabæjar

  • Bangsagetraun Bókasafns Garðabæjar

Taktu þátt í bangsagetraun og sendu Bókasafninu bangsamynd!

Bangsadagurinn er þriðjudaginn 27. október nk. Af því tilefni bjó Bókasafn Garðabæjar til litla bangsagetraun og þrír heppnir þátttakendur í getrauninni hljóta bangsa í verðlaun. 

Í fyrra komu bangsar í bangsagistingu á bókasafninu en það er víst ekki hægt núna. Starfsfólk bókasafnsins saknar bangsanna og þeir sem vilja geta sent bókasafninu mynd af uppáhaldsbangsanum sínum í netfangið bokasafn@gardabaer.is og myndir af böngsunum verða birtar á vef safnsins og fésbókarsíðu. 

Hér er bangsagetraunin

Bangsakveðjur frá bókasafninu

Vefur Bókasafns Garðabæjar
Fésbókarsíða Bókasafns Garðabæjar