Barbie fer á Hönnunarsafnið - leiðsögn á síðasta sýningardegi
Barbie fer á Hönnunarsafnið - boðið verður upp á leiðsögn á síðasta sýningardegi, sunnudaginn 1. júní.
Barbie hefur verið gestur á sýningunni Hönnunarsafnið sem heimili undanfarnar vikur. Sunnudaginn 1. júní lýkur þessar skemmtilegur heimsókn með leiðsögn sýningarstjóra Heru Guðmundsdóttur kl. 13:00.
Hönnunarsafn Íslands fékk til liðs við sig 6 íslenska fatahönnuði sem hönnuðu fatalínu handa Barbie. Hönnuðirnir eru Guðrún Ragna Sigurjónsdóttir fyrir Kormák og Skjöld, Hildur Yeoman, Sigmundur Páll Freysteinsson, Seinunn Sigurðardóttir ásamt Arndísi Sigurbjörnsdóttur, Sunna Örlygsdóttir og Thelma Björk Jónsdóttir.
Sama dag kl. 14 verður Fjölskylduleiðsögn á pólsku um sýninguna í umsjón Juliu Pieczonka.
Hönnunarsafn Íslands við Garðatorg er opið alla daga frá kl 12-17 nema mánudaga.
Ljósmynd: Studó Fræ af hönnun Sunnu Örlygsdóttur