• 22.10.2025, Garðabær

Bleiki dagurinn 2025

Bleiki dagurinn í ár er haldinn 22. október.

Bleiki dagurinn er hluti af Bleikum október sem er árlegt árvekni- og fjáröflunarátak Krabbameinsfélagsins tileinkað baráttunni gegn krabbameinum hjá konum.

Á Bleika deginum eru landsmenn hvattir til að vera bleik - fyrir okkur öll. Bera slaufuna, klæðast bleiku og lýsa skammdegið upp í bleikum ljóma svo allar konur sem greinst hafa með krabbamein og aðstandendur þeirra finni stuðning okkar og samstöðu.