• 20.10.2022, 10:30, Bókasafn Garðabæjar

Bókasafn Garðabæjar:Foreldraspjall með Indíönu Ægisdóttur kynfræðingi

  • Indíana Rós Ægisdóttir

Indíana Rós kynfræðingur kemur í Bókasafn Garðabæjar á Garðatorg 7 í foreldraspjall fimmtudaginn 20. október kl. 10:30 og spjallar um kynlíf eftir barneignir.

Indíana ræðir um það mikilvæga málefni að rækta kynveru sína á sama tíma og að sinna nýju hlutverki sem foreldri. Hún fer víða um völl og ræðir meðal annars um það sem getur oft reynst mörgum áskorun, eins og það að læra á breyttan líkama, að finna aftur löngun og hvernig hægt er að æfa sjálfsmildi.
Opið spjall fyrir alla foreldra.
Krílin hjartanlega velkomin með.
Heitt á könnunni.