• 17.11.2019, 12:30 - 16:30, Sveinatunga

Börn og samgöngur - málþing í Sveinatungu

  • Sveinatunga - fjölnota fundarsalur bæjarins á Garðatorgi

Málþing um börn og samgöngur verður haldið mánudaginn 18. nóvember frá kl. 12:30 til 16:30 á vegum samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytisins í samvinnu við Samgöngustofu, Vegagerðina og Samband íslenskra sveitarfélaga.

Málþing um börn og samgöngur verður haldið mánudaginn 18. nóvember (ath. ný dagsetning) frá kl. 12:30 til 16:30 á vegum samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytisins í samvinnu við Samgöngustofu, Vegagerðina og Samband íslenskra sveitarfélaga. Málþingið verður haldið í Sveinatungu á Garðatorgi 7(ráðhúsi Garðabæjar).

Á þinginu munu bæði ungir sem aldnir taka til máls og ræða stöðu barna í samgöngum í víðu samhengi. Í kjölfar fyrirlestra verða pallborðsumræður. Málþingið er öllum opið en nauðsynlegt er að skrá sig. Fundinum verður streymt í beinni útsendingu á vef Stjórnarráðsins.

Skráning á málþingið - frétt á vef Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytisins.

Dagskrá

12:30 – Málþing sett

  • Ávörp
    Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra
    Þórunn Egilsdóttir, formaður samgönguráðs
  • Umferðaröryggi - okkar mál!
    Karín Óla Eiríksdóttir, formaður ungmennaráðs Grindavíkur
  • Hvernig við sjáum umferðaröryggið. 
    Atli Þór Jónsson og Fannar Freyr Atlason, björgunarsveitarmenn í Slysavarnarfélaginu Landsbjörgu
  • Samstarf við Samgöngustofu um að efla umferðaröryggi grunnskólabarna í sveitarfélaginu.
    Ólafur Hilmarsson, deildarstjóri við Grunnskólann í Hveragerði
  • Komiði með hætturnar!“ Skipulag, þjóðvegir og börn.
    Erna Bára Hreinsdóttir, forstöðumaður hjá Vegagerðinni
  • Pallborð með fyrirlesurum fyrir hlé

14:20 – Kaffihlé

  • Hagnýting sálfræðilegrar þekkingar til að breyta ferðavenjum
    Sigrún Birna Sigurðardóttir, samgöngu- og umferðarsálfræðingur
  • Mikilvægi umferðaröryggisáætlunar fyrir minni sveitarfélög
    Þorsteinn Gunnarsson, sveitarstjóri Skútustaðahrepps
  • Öryggi barna í Reykjavík
    Berglind Hallgrímsdóttir og Höskuldur Kröyer, samgönguverkfræðingar hjá Eflu og Trafkon
  • Pallborð með fyrirlesurum eftir hlé
  • Gamanmál

16:30 – Málþingi lýkur

Fundarstjóri er Ragnhildur Hjaltadóttir ráðuneytisstjóri.