• 16.11.2022, 16:30, Bókasafn Garðabæjar

Dagur íslenskrar tungu: Kristín Helga og Kór Hofsstaðaskóla

Við ætlum að fagna okkar ylhýra og fallega tungumáli á degi íslenskrar tungu miðvikudaginn 16. nóvember með því að fá góða gesti í heimsókn.

Við ætlum að fagna okkar ylhýra og fallega tungumáli á degi íslenskrar tungu miðvikudaginn 16. nóvember með því að fá góða gesti í heimsókn.Klukkan 16:30 mætir Kór Hofsstaðaskóla og syngur fyrir okkur vel valdar dægurlagaperlur.
Eftir það kemur hinn frábæri rithöfundur Kristín Helga Gunnarsdóttir og les upp úr nýjustu bók sinni Obbuló í Kósímó.Komið og fagnið með okkur.