• 12.11.2019, 18:00, Bókasafn Garðabæjar

Drauma-Jói kl. 18

Bjarni Bjarnason bæjarlistamaður Garðabæjar heldur erindi um Drauma-Jóa þriðjudaginn 12. nóvember klukkan 18 í Bókasafni Garðabæjar. 

Bjarni Bjarnason bæjarlistamaður Garðabæjar heldur erindi um Drauma-Jóa þriðjudaginn 12. nóvember klukkan 18 í Bókasafni Garðabæjar. Í erindinu fjallar Bjarni M. Bjarnason um Drauma-Jóa, sem bjó á Langanesi og talinn var berdreyminn: Fólk leitaði til hans þegar munir týndust, þegar fiskibátar eða strandferðaskip skiluðu sér ekki í höfn á réttum tíma, þegar það hafði ekki heyrt í ættingjum erlendis lengi og þegar þjófnaður virtist hafa átt sér stað. Drauma-Jói var talinn geta greitt úr þessu og ýmsu öðru. 
Hann varð svo efni í fyrstu dulsálfræðitilrauninni hér á landi sem fyrsti Doktorinn, Ágúst H. Bjarnason framkvæmdi á Vopnafirði 1914. Bjarni M. Bjarnason, bæjarlistamaður Garðabæjar segir frá þessu, og kemur inn á draumatrú á Íslandi. Hann hefur sjálfur gefið út draumadagbókina Nakti vonbiðillinn. Í lok erindis eru umræður um efnið.