Draumasundlaugin - fjölskyldusmiðja
Unnar Ari grafískur hönnuður leiðir smiðju þar sem þú hannar og setur upp plan af þinni draumasundlaug.
Unnar Ari leiðir smiðju þar sem þú hannar og setur upp plan af þinni draumasundlaug. Smiðjan er hluti af mánaðarlegri fjölskyldudagskrá Hönnunarsafns Íslands. Aðgangur er ókeypis og opinn öllum.
Unnar er grafískur hönnuður og hefur teiknað upp allar manngerðar almennings útisundlaugar á Íslandi 106 laugar alls. Verkefnið ber yfirskritina Sundform. Hann notar ákveðið litakerfi og úr verða skemmtileg geometrísk myndverk með vísan í ákveðnar laugar.
Í smiðjunni ætlum við að vinna svipuð verk út frá hugmyndum hvers og eins um draumasundlaugina.