• 20.1.2023, 18:00, Hönnunarsafn Íslands

Fallegustu bækur í heimi og keramikhönnuður í vinnustofu Hönnunarsafns Íslands

Föstudaginn 20. janúar klukkan 18 verður sýningin Fallegustu bækur í heimi opnuð á Pallinum og á sama tíma verður innflutningsboð hjá keramikhönnuðinum Ödu Stańczak sem verður í vinnustofudvöl í Hönnunarsafninu fram á vorið.

Föstudaginn 20. janúar klukkan 18 verður sýningin Fallegustu bækur í heimi opnuð á Pallinum og á sama tíma verður innflutningsboð hjá keramikhönnuðinum Ödu Stańczak sem verður í vinnustofudvöl í Hönnunarsafninu fram á vorið.

Það er FÍT í samstarfi við Hönnunarsafn Íslands sem stendur fyrir sýningunni Fallegustu bækur í heimi en Best Book Design from all over the World keppnin hefur verið haldin frá árinu 1963 með það að markmiði að hvetja til aukins alþjóðlegs samtals um bókahönnun. Að þessu sinni bárust bækur frá 30 löndum í keppnina en fjórtán bækur voru verðlaunaðar og samanstendur sýningin af verðlaunabókunum.

Ada Stańczak er keramikhönnuður og rannsakandi sem mun dvela fram í maí í vinnustofu Hönnunarsafnsins. Ada lauk námi í menningarfræðum frá Háskólanum í Varsjá og keramiknámi frá Myndlistarskólanum í Reykjavík. Hún flutti til Íslands fyrir fimm árum og við það kviknaði áhugi hennar á því að rannsaka hvernig íslenskur efniviður eins og leir, jarðvegur, hraun og steinar geta haft áhrif á það að tilheyra ákveðnum stað eða landi.

Á meðan á dvölinni stendur mun Ada rannsaka möguleika jarðefnanna sem litarefni fyrir keramik. Gestir geta fylgst með tilraunum, vöruþróun og gerð verka frá upphafi að fullgerðri vöru. Einnig geta gestir verslað beint frá hönnuðinum.

Ada mun standa fyrir námskeiðum og vinnusmiðjum á meðan á dvölinni stendur. Upplýsingar verða settar á heimasíðu safnsins og samfélagsmiðla.