Felix Bergsson og Drottningin af Galapagos
Felix Bergsson, höfundur bókarinnar Drottningin af Galapagos, mun lesa æsispennandi kafla úr bókinni, svara spurningum í kjölfarið og sýna krökkunum fallegar myndirnar sem Kári Gunnarsson teiknaði.
Nýlega kom út bókin Drottningin af Galapagos en þetta er fyrsta sagan í bókaflokki um ævintýri systkinanna Freyju og Frikka. Felix Bergsson, höfundur bókarinnar, mun lesa æsispennandi kafla úr bókinni, svara spurningum í kjölfarið og sýna krökkunum fallegar myndirnar sem Kári Gunnarsson teiknaði.
Felix ætlar svo að syngja nokkur lög sem allir þekkja og fá krakkana til að taka undir.
Gæðastund á safninu því LESTUR ER BESTUR!
English:
Author and entertainer Felix Bergsson reads from his new mystery children's novel and sings a few songs.
