• 23.6.2022, 13:00, Bókasafn Garðabæjar
  • 30.6.2022, 13:00, Bókasafn Garðabæjar
  • 7.7.2022, 13:00, Bókasafn Garðabæjar
  • 14.7.2022, 13:00, Bókasafn Garðabæjar
  • 21.7.2022, 13:00, Bókasafn Garðabæjar
  • 28.7.2022, 13:00, Bókasafn Garðabæjar

Fimni á fimmtudögum - Sköpunarsmiðjur á Bókasafni Garðabæjar

Fimnisdagar - fimni á fimmtudögum. Sex fimmtudaga í sumar, frá 23. júní - 28. júlí verður boðið upp á sköpunarsmiðjur kl. 13:00 á Bókasafni Garðabæjar á Garðatorgi.

Sumarstarfsmaður bókasafnsins leiðbeinir áhugasömum krökkum í ýmsum list - og sköpunarsmiðjum.
Smiðjurnar eru ókeypis og opnar öllum.

  • Fimmtudagur 23. júní kl. 13:00
    Gera verur, manneskjur eða annað slíkt úr tímaritaúrklippum. Klippa út mismunandi hluta úr tímaritum og líma saman til að skapa einstaka veru.
  • Fimmtudagur 30. júní kl. 13:00
    Ljóðasmiðja. Nota mismunandi aðferðir til þess að gera skemmtileg og frumleg ljóð.
  • Fimmtudagur 7. júlí kl. 13:00
    Persónusköpun. Farið yfir mikilvæg atriði til þess að skapa persónu fyrir handrit, smásögu, ljóð og fleira. Farið yfir áhugamál, aldur, umhverfi, fjölskyldumynstur og margt fleira.
  • Fimmtudagur 14.júlí kl. 13:00
    Ritlistarsmiðja. Notum líflegar og skemmtilegar aðferðir til þess að skapa söguþráð. Söguþráðurinn má vera samhengislaus.
  • Fimmtudagur 21. júlí kl. 13:00
    Greina bókmenntir. Hver og einn teiknar, krítar eða málar abstrakt verk eftir því hvaða táknrænu skilaboð söguþráðurinn gefur.
  • Fimmtudagur 28. júlí kl. 13:00

Bókasafn Garðabæjar á Garðatorgi opnar kl. 9 og það er alltaf velkomið að koma snemma og hanga, lesa eða spjalla.
Bókasafn Garðabæjar á facebook.