• 15.9.2019, 13:00 - 15:00, Hönnunarsafn Íslands

Fjölskyldusmiðja kl. 13

  • Að byggja borg

Fjölskyldusmiðjan Að byggja borg verður í Hönnunarsafni Íslands sunnudaginn 15. september nk. kl. 13-15. 

Fjölskyldusmiðjan Að byggja borg verður í Hönnunarsafni Íslands sunnudaginn 15. september nk. kl. 13-15. Smiðjunni verður stillt upp sem borðspili í yfirstærð þar sem þáttakendur taka þátt í að byggja upp borg. Þannig gefst innsýn í heim byggingarlistar og borgarskipulags á aðgengilegan og áhugaverðan hátt. Spilað verður eftir hnitmiðuðum leikreglum sem endurspegla einfaldaða útgáfu af samfélagi á skemmtilegan máta.

Smiðjan hentar fróðleiksfúsu og forvitnu fólki á öllum aldri. Kristján Örn Kjartansson arkitekt og einn af stofnendum arkitektastofunnar Kards og Lóa Hjálmtýsdóttir, teiknari og tónlistarmaður stýra smiðjunni. Aðgangur er ókeypis.