Fjör í vetrarfríi - Bíófjör
Bíósýning, ratleikur og bækur í vetrarfríi grunnskóla á Bókasafni Garðabæjar á Garðatorgi 7
Fjör í vetrarfríi!
- Bíófjör: Föstudaginn 27. febrúar, kl.10-12, verður sýnd myndin Töfralandið OZ, Dorothea snýr aftur, með íslensku tali, fyrir grunnskólabörn og fjölskyldur þeirra.
- Ratleikur: Orðaratleikur, sem reynir á þekkingu þátttakenda á bókasafninu og bókum, verður í boði allan daginn, kl.9-19. Dregið verður úr réttum lausnum 2. mars kl.12 og munu þrír heppnir hljóta glaðning.
Verið innilega velkomin á bókasafnið Garðatorgi í vetrarfríinu. Fullt af frábærum bókum, myndir til að lita, tafl og notalegt umhverfi!
Viðburður á facebook síðu Garðabæjar
Yfirlit yfir viðburði á næstunni hjá Bókasafni Garðabæjar
