,,Flokk till you drop" - opnun í Hönnunarsafninu
Þriðjudaginn 23. júní kl. 12-17: Opnun verkefnisins ,,Flokk till you drop" í Hönnunarsafni Íslands við Garðatorg 1.
Þriðjudaginn 23. júní kl. 12-17: Opnun verkefnisins ,,Flokk til you drop" í Hönnunarsafni Íslands við Garðatorg 1.
„FLOKK TILL YOU DROP“ er ádeila á úrelta orðatiltækið „shop till you drop“.
Verkefnið stuðlar að því að auka vitundarvakningu um neyslumenningu Íslendinga og beina sjónum að því magni af fatnaði og öðrum textíl sem fólk gefur í Rauða Krossinn. Hvað verður um þennan efnivið? Hvaða upplýsingar er hægt að lesa úr einu tonni? Er hægt að nýta hönnun til að auka virði hráefnisins? Þessar og fleiri spurningar ætlar hópurinn að takast á við meðan á verkefninu stendur.
Verkefnið er í vinnustofudvöl í safninu. Hafist verður handa á flokkun á einu tonni af fötum. Þá tekur við ýmiskonar greining og listsköpun. Aðilar sem verða við störf í Hönnunarsafninu eru Berglind Ósk Hlynsdóttir, nemandi í fatahönnun við LHI, Rebekka Ashley Egilsdóttir, nemandi í vöruhönnun við LHI og Melkorka Magnúsdóttir nemandi í mannfræði við HÍ.
Verkefnið er samstarfsverkefni Fatasöfnunar Rauða Krossins, Listaháskóla Íslands, Háskóla Íslands, og Textílmiðstöðvar Íslands. Verkefnið er styrkt af Nýsköpunarsjóði námsmanna.
Hönnunarsafn Íslands er til húsa að Garðatorgi 1 í Garðabæ.