• 11.9.2025, 10:00, Bókasafn Garðabæjar

Foreldramorgunn

Skynjunarleikur með Plánetunni.

Pláneta býður litlum krílum að stinga sér til leiks í grípandi skynjunarupplifun!

Skynjunarleikur er mikilvægur partur af þroska ungra barna og hafa rannsóknir sýnt fram á að skynörvandi upplifun hefur jákvæð áhrif á vitrænan þroska þeirra. Alls konar áferðir, efniviðir, hljóð og lyktir verða á staðnum fyrir börnin til að upplifa og gera má ráð fyrir að leikurinn geti orðið pínu subbulegur!

Við minnum því öll á að koma með aukaföt til skiptanna.

Dagskráin er ókeypis og öll eru velkomin. Sjáumst á bókasafninu!