• 12.3.2026, 19:30, Sveinatunga

Foreldranámskeið

Fræðslu- og frístundasvið og velferðarsvið Garðabæjar bjóða upp á námskeið fyrir foreldra sem vilja auka færni sína til að takast á við uppeldishlutverkið.

Á námskeiðinu munu reynslumiklir uppeldisráðgjafar gefa gagnleg ráð og kenna aðferðir til að draga úr vægum hegðunarvanda, auka samstarfsvilja og ýta undir færni barnsins til að takast á við daglegt líf.

Boðið verður upp á notalega kvöldstund þar sem foreldrum gefst tækifæri til þess að auka færni sína og læra nýjar uppeldisaðferðir.Námskeiðið er um tvær klukkustundir og er haldið 12. mars klukkan 19:30, í Sveinatungu á Garðatorgi.

Skráning fer fram hérna: https://forms.office.com/e/cjbVztXryW

Þátttökugjald er 2.500 kr. fyrir fjölskyldu, greiðsluseðill verður sendur út við skráningu.

Frekari upplýsingar má nálgast hjá Garðabæ í síma 525-8500