• 18.10.2018, 10:00, Bókasafn Garðabæjar

Foreldraspjall kl. 10

Foreldraspjall fer fram í Bókasafni Garðabæjar á Garðatorgi, fimmtudaginn 18. október kl. 10 þar sem Elsa Pálsdóttir, sérfræðingur hjá Menntamálastofnun fræðir um mikilvægi þess að lesa fyrir ung börn. Foreldraspjallið eru samverustundir fyrir foreldra og börn þeirra og hentar þeim sem eru í fæðingarorlofi eða heimavinnandi. 

Markmiðið með foreldraklúbbnum er að efla félagsleg tengsl foreldra og barna þeirra í Garðabæ og hafa vettvang til að spjalla saman um allt milli himins og jarðar. Boðið verður upp á kaffi, te og ýmsar fróðlegar kynningar um efni sem tengist barnauppeldi. 
Þá er einnig mikið úrval til af bókum um börn og uppeldi. 

Facebook viðburðurinn.