• 7.10.2020 - 14.10.2020, Garðabær

Forvarnavika Garðabæjar

  • Forvarnavika Garðabæjar 7.-14. október 2020

Hin árlega forvarnavika Garðabæjar verður haldin dagana 7.-14. október 2020. Þema vikunnar er:  ,,AÐ STANDA MEÐ SJÁLFUM SÉR"

Dagskráin fer fram í litlum hópum, innan skóla og á vefmiðlum.

MIÐVIKUDAGUR 7. OKTÓBER:

  • Forvarnardagurinn er haldinn miðvikudaginn 7. október að frumkvæði forseta Íslands.
  • „Hvernig stöndum við með sjálfum okkur og um leið hjálpum þeim sem eru í vanda?“ fræðslumyndbönd rithöfundarins Gunnars Helgasonar og Felix Bergssonar sýnd í leikskólum Garðabæjar.
  • Í Fjölbrautaskólanum í Garðabæ: Ljóðasamkeppni fyrir nemendur til að vekja athygli á baráttu gegn ofbeldi.

FIMMTUDAGUR 8. OKTÓBER:

  • Í Sjálandsskóla og Álftanesskóla: Fyrirlestrar um viðhorf og staðalímyndir
    „Fávitar“- Sólborg Guðbrandsdóttir, tónlistarkona, fyrirlesari og laganemi
    „Karlmennskan“- Þorsteinn V. Einarsson, deildarstjóri í félagsmiðstöð og pistlahöfundur

ÞRIÐJUDAGUR 13. OKTÓBER:

  • „Líðan unglinga í Garðabæ“ Margrét Lilja Guðmundsdóttir frá Rannsóknum og greiningu kynnir nýjustu niðurstöður úr könnun á högum og líðan grunnskólanemenda í 8.,9. og 10. bekk. Fjarfundir með kennurum og skólastjórum og vefútsending til foreldra í grunnskólum.

VIÐBURÐIR ALLA VIKUNA:

  • „Að standa með sjálfum sér“ stuttmynd á vegum Ungmennaráðs Garðabæjar, rafræn miðlun.
  • „Að læra mörk“ verkefni fyrir nemendur í 1.-4 bekk unnið í skólunum út frá bókunum „Þú ert frábær“ og „Rúnar góði“.
  • Verkefni fyrir nemendur í 5.-7. bekk unnið í skólunum út frá myndinni „Stattu með þér“ o.fl. hugmyndum.
  • „Ofbeldisforvarnaskólinn“ fyrirlestur og verkefni í Garðaskóla um að búa til fyrirmyndir sem aðstoða við að vinna gegn ofbeldi. Benedikta Sörensen verkefnastjóri og John Friðrik Bond Grétarsson forstöðumaður félagsmiðstöðvarinnar Garðalundar.
  • Kynfræðsluspilið „Sleikur“ kynnt í efri bekkjum grunnskólanna

GÖTUVAKTIN:

Götuvaktin er vettvangsstarf félagsmiðstöðvanna. Tilgangur starfsins er að auka sýnileika úti í hverfunum með virku vettvangsstarfi utan opnunartíma félagsmiðstöðvanna og mynda tengingar við unglingahópana utan hins hefðbundna starfsumhverfis.

Með Götuvaktinni verður sýnileiki jákvæðra áhrifavalda meiri, unnið er gegn neikvæðum áhættuþáttum í umhverfi ungmennanna okkar og búið er til öruggt umhverfi fyrir ungmennin að þroskast í.

 

Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar
Ungmennaráð Garðabæjar