• 26.10.2019, 13:30, Bessastaðakirkja

,,Komdu með kalda fingur þína" - fræðslu- og tónlistardagskrá félags áhugamanna um sögu Bessastaðaskóla

  • Félag áhugamanna um sögu Bessastaðaskóla

,,Komdu með kalda fingur þína" - fjölbreytt fræðslu- og tónlistardagskrá hjá félagi áhugamanna um sögu Bessastaðaskóla verður haldin laugardaginn 26. október í Bessastaðakirkju.

Aðalfundur Félags áhugamanna um sögu Bessastaðaskóla verður haldinn í Bessastaðakirkju n.k. laugardag, 26. október kl. 13.30.
Að loknum aðalfundi fræðslu- og tónlistardagskrá kl. 14-15

Dagskrá:

  • Nemendur í Álftanesskóla syngja lög við texta eftir Sveinbjörn Egilsson
  • Ávarp forseta Íslands 
  • Guðrún Birgisdóttir leikur einleik á flautu verk eftir Telemann, Kuhlau og Johannes Sebastian Bach 
  • Soffía Auður Birgisdóttir flytur erindið: "Af Sveinbjarnardætrum - saga systra".
    Soffía Auður mun segja frá rannsókn sinni á lífi og örlögum sex dætra Sveinbjarnar Egilssonar og Helgu Benediktsdóttur Gröndal. Saga systranna varpar ljósi á ýmsa mikilvæga þætti í sögu og lífi íslenskra kvenna á 19. öld. Dætur Sveinbjarnar og Helgu voru þær Þuríður (1823-1899), Guðrún (1831-1916), Kristín (1833-1879), Sigríður (1835-1879), Valborg Elísabet (1838-1870) og Guðlaug Ragnhildur (1843-1866)
  • Heiðursviðurkenning til félaga tilkynnt

Kaffiveitingar á Bjarnastöðum á Álftanesi að lokinni dagskrá.