• 25.6.2020, 17:00 - 19:00, Búrfellsgjá

Ganga um Búrfellsgjá - friðlýsing svæðisins

Fimmtudaginn 25. júní nk. ætlar Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra, að undirrita friðlýsingu fyrir Búrfell, Búrfellsgjá og Selgjá í Garðabæ. Í tilefni af friðlýsingunni ætlar Ferðafélag Íslands að halda í gönguferð í Búrfellsgjá og á Búrfell. 

Fimmtudaginn 25. júní nk. ætlar Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra, að undirrita friðlýsingu fyrir Búrfell, Búrfellsgjá og Selgjá í Garðabæ. Í tilefni af friðlýsingunni ætlar Ferðafélag Íslands að halda í gönguferð í Búrfellsgjá og á Búrfell. 

Gangan hefst kl. 17 frá nýja bílastæðinu við Heiðmerkurveg og áætlað er að hún taki um 2 klst. 

  • Fararstjóri er Snæbjörn Guðmundsson frá Ferðafélagi Íslands.
  • Þátttakendur koma á eigin vegum að upphafsstað og eru hvattir til að sameinast í bíla. Ekið er upp í Heiðmörk frá Garðabæ eða Hafnarfirði og nýja bílastæðið er áberandi á hægri hönd um 2 km eftir að beygt er inn afleggjara í Heiðmörk.
  • Á bílastæðinu er fræðsluskilti með fróðleik og kort af gönguleið um svæðið. Göngustígurinn er nýr og endurbættur og þægilegur til göngu. Ráðherra mun skrifa undir friðlýsinguna í fræðslugöngunni.

Gönguferð í Búrfellsgjá er skemmtileg og þægileg ganga sem hentar vel fyrir alla fjölskylduna. Þátttaka er ókeypis og allir eru velkomnir með í gönguna.

Sjá líka bílastæði við Heiðmerkurveg og kort af svæðinu á kortavef Garðabæjar

Um Búrfellsgjá

Búrfellsgjá varð til í miklu eldgosi fyrir um átta þúsund árum í litlum eldgíg, sem nefnist Búrfell. Eldgosið hefur verið tiltölulega rólegt flæðigos, þar sem upp úr eldgígnum flæddi hraun niður á láglendið alla leið út í sjó. Aðalhraunstraumurinn var um mikla hrauntröð, en það er heiti á stórum hraunfarvegum þar sem hraun flæðir eins og risastór fljót frá eldgíg niður á láglendi þar sem það svo storknar og myndar hraun. Hraunin í miðbæ Hafnarfjarðar, í Garðabæ og Gálgahraun á Álftanesi eiga öll uppruna sinn í Búrfelli og Búrfellsgjá. Búrfellsgjá sjálf er því afar gott dæmi um svona hrauntröð.
Á göngu um Búrfellsgjá sjást margskonar hraunmyndanir, litlir hellisskútar, stórar sprungur og svokölluð misgengi, og svo auðvitað sjálf eldstöðin sem fæddi hraunið af sér. 

Frétt um fræðslugönguna á vef Ferðafélags Íslands.