• 19.6.2025, 17:00, Sveinatunga

Fundur bæjarstjórnar

Fundur bæjarstjórnar verður næst haldinn 19. júní kl. 17 í Sveinatungu og í beinni útsendingu á netinu.

Næsti fundur bæjarstjórnar verður fimmtudaginn 19. júní 2025 kl. 17:00 í fundarsal bæjarstjórnar Garðabæjar í Sveinatungu, Garðatorgi 7.

Fundurinn verður með breyttu sniði í tilefni 110 ára afmælis kosningaréttar kvenna til Alþingis.

Fundir bæjarstjórnar eru öllum opnir.

Bein útsending er á vefnum í og fundargerð má sjá hér á vef Garðabæjar daginn eftir fund.