Furðufugl - ÞYKJÓ með fuglagrímusmiðju
Í grímusmiðjunni Furðufugl fá börn tækifæri til að skapa sína eigin furðufugla ásamt fjölskyldunni með aðstoð hönnuða ÞYKJÓ.
Er þetta lóa? Er þetta spói? Er þetta kannski furðufugl? Smiðjan er ætluð börnum 4 ára og eldri í fylgd fullorðinna. Við hlökkum til að sjá hvaða nýju fuglar ungast út þennan dag!
Nánar um ÞYKJÓ:
ÞYKJÓ er þverfaglegt teymi hönnuða sem vinna fyrir börn og fjölskyldur þeirra á sviði upplifunarhönnunar, innsetninga og vöruhönnunar.
Hönnunarstarf þeirra miðar að því að örva ímyndunarafl og sköpunarkraft barna í samstarfi við mennta- og menningarstofnanir. ÞYKJÓ hlaut Hönnunarverðlauna Íslands 2024 fyrir verkefnið Börnin að borðinu. Hópurinn hefur í tvígang hlotið tilnefningu til sömu verðlauna, árin 2021 og 2022 auk tilnefningu til alþjóðlegu YAM verðlaunanna 2023.