Garðaprjón: Finnskir lestarsokkar
Bókasafnið í Garðabæ í samstarfi við Norræna félagið í Garðabæ býður gestum og gangandi uppá leiðsögn í að prjóna finnska lestarsokka.
Hittingarnir eru fjórir: 24. sept. kl. 19, 1. okt. kl. 19, 8.okt. kl. 10.30 og 15. okt. kl. 19 og hver veit nema að haldið verði áfram.
Einnig er fólki frjálst að mæta með hvað sem það hefur fitjað uppá sína prjóna.