• 6.6.2024 - 29.6.2024, Bókasafn Garðabæjar
  • 6.6.2024, 16:00 - 19:00, Bókasafn Garðabæjar

HAPPY HOUSES

Auja / Auður Björnsdóttir er listamaður júnímánaðar á Bókasafni Garðabæjar í samstarfi við Grósku myndlistafélag Garðabæjar.

 

„HAPPY HOUSES“ sýning hennar opnar fimmtudaginn 6. júní og verður með móttöku kl. 16.00 – 19.00 og eru allir hjartanlega velkomnir í spjall við listamanninn og þiggja léttar veitingar.

Auja er einn af stofnendum ART67 gallerí á Laugavegi, Grósku myndlistarfélags Garðabæjar og Litku myndlistarfélagi.

Auja hefur alltaf haft mikinn áhuga á arkitektúr, list, formum og litum. Það var þó ekki fyrr en 2008 að hún byrjaði að mála og varð strax hugfangin af málun. Allar götur síðan hefur áhuginn eflst og aukist.

Auja málar mest með olíu en þar finnst henni hún betur geta túlkað viðfangsefnið með grófum áferðum í bland við þunn lög og gegnsæi. Hún málar af því að þar fær hún útrás fyrir sköpun og að sjá eitthvað verða til og það veitir henni mikla ánægju, þó í bland sé þetta mikil togstreita.

Auja fór að mála HAPPY HOUSES fljótlega eftir hrunið, það var mikil depurð í samfélaginu og langaði hana að mála myndir sem væru glaðar og litríkar með skrítnum húsum og fígúrum. Myndir sem gætu glatt og jafnvel dregið fram bros áhorfandans. Hún hefur nú málað á annað hundrað myndir af HAPPY HOUSES.

Auja hefur stundað nám bæði erlendis og hér heima. Hún var í Myndlistaskóla Kópavogs, Master Class námskeiðum hjá Bjarna Sigurbjörnssyni, Birte Kjærsgaard í Grikklandi, Björn Ignatius billedkunstskolen í Kaupmannahöfn, Serhiy Savchenko í Slóvaníu og Póllandi, Anne Marie Ploug í Danmörku og fleiri styttri námskeiðum.

Hún hefur haldið nokkrar einkasýningar og fjölda samsýninga. Hún er með vinnustofu ART AUJA á Garðatorgi 1, 2 hæð og þar er hægt að sjá fleiri verk eftir hana.