Hátíðarfundur bæjarstjórnar Garðabæjar
Í tilefni þess að 50 ár verða liðin frá því að Garðabær fékk kaupstaðaréttindi er boðað til hátíðarfundar bæjarstjórnar þriðjudaginn 6. janúar klukkan 17:00.
Boðað er til hátíðarfundar bæjarstjórnar þriðjudaginn 6. janúar 2026 kl. 17:00. Hátíðarfundurinn verður haldinn í samkomuhúsinu Garðaholti líkt og fyrsti bæjarstjórnarfundurinn árið 1976.
Fundir bæjarstjórnar eru öllum opnir.