• 5.11.2022, 13:30 - 17:30, Gróskusalurinn
  • 6.11.2022, 13:30 - 17:30, Gróskusalurinn

Haustsýning Grósku

  • Haustsýning Grósku 2022

Haustsýning Grósku verður opin í Gróskusalnum á Garðatorgi helgina 5.-6. nóvember frá 13:30-17:30.

Haustsýning Grósku verður opnaði föstudaginn 28. október sl. í Gróskusalnum á 2. hæð, Garðatorgi 1, og einnig á torginu fyrir framan.
Þema sýningarinnar er rökkur. Sýnendur eru 23 og allir í Grósku, félagi myndlistarmanna í Garðabæ. Sýningarstjóri er Laufey Jensdóttir myndlistarmaður.

Viðburður á facebook síðu Grósku

Sýningin verður aftur opin helgina 5.-6. nóvember kl. 13.30-17.30.

Gróska er öflugt myndlistarfélag sem stendur fyrir allnokkrum myndlistarsýningum á ári, auk námskeiða og annarra viðburða. Í félaginu er fjölskrúðugur hópur fagmenntaðra og sjálfmenntaðra myndlistarmanna en ein af hugsjónum Grósku er að allir fái að blómstra og njóta sín við listsköpun. Í rúmlega tólf ár hefur starfsemi Grósku skapað mikilvægan vettvang fyrir skapandi samneyti myndlistarmanna og eflt myndlistina og menningarlíf Garðabæjar.
Myndlistarmenn sem búa eða vinna í Garðabæ eru hvattir til að sækja um inngöngu í Grósku gegnum fésbókarsíðu Grósku https://www.facebook.com/groska210/ eða með því að senda póst á groskamyndlist@gmail.com .