• 15.5.2025, 19:30 - 22:00, Garðalundur

Hinsegin opnun félagsmiðstöðvanna

Félagsmiðstöðvar í Garðabæ halda sameiginlegt opið hús fyrir hinsegin unglinga.

Félagsmiðstöðvar í Garðabæ ætla að halda opið hús í Garðalundi fimmtudagskvöldið 15. maí milli kl. 19:30 og 22:00. Þetta er fyrir alla hinsegin unglinga í Garðabæ, þar sem þeir geta komið saman, sinnt tómstundum og spjallað við aðra. Þetta er tilraun til að bjóða unglingum okkar að hittast í sínu samfélagi og styrkja tengsl og stuðning. Starfsmenn frá öllum félagsmiðstöðvunum verða viðstaddir og vonir standa til að þetta verði reglulegur viðburður í framtíðinni.