• 27.11.2021, 13:00, Bókasafn Garðabæjar

Hnefatafl, nútímatafl og aðrir leikir

Við langeldinn / Við eldhúsborðið á bókasafninu Garðatorgi verður haldið laugardaginn 27. nóvember kl. 13.

Hvernig léku landnámsmenn sér og hverjir ætli hafi telft? Veltum vöngum, teflum og spilum með nýjum og gömlum skákmönnum - Við langeldinn / Við eldhúsborðið á bókasafninu Garðatorgi 7 laugardaginn 27. nóvember kl. 13.

Hnefatafl er viðfangsefni dagsins og er liður í verkefninu Við langeldinn/Við eldhúsborðið sem styrkt er af Barnamenningarsjóði Íslands. Hnefataflið verður kynnt af Sindra Guðjónssyni frá Taflfélagi Garðabæjar en hnefatafl líkist skák og er herkænskuleikur þar sem markmiðið er að ráðast á konung. Leikurinn er spilaður á reitarborði og tvær andstæðar fylkingar reyna allt til að verja sinn konung. Hnefatafl verður á staðnum en einnig hefðbundið taflborð og önnur spil verða einnig dregin fram.
Um Við langeldinn/Við eldhúsborðið:
Í fjölbreyttum smiðjum í Bókasafni Garðbæjar og á Hönnunarsafni Íslands munu börn og fjölskyldur þeirra fá tækifæri til að velta fyrir sér lífinu á landnámsöld í samanburði við líf okkar í dag. Fornleifafræði, arkitektúr, bókmenntir, hönnun og handverk, sagnfræði og þjóðfræði eru viðfangsefni smiðjanna sem allar tengjast landnámsskálanum sem staðsettur er í Minjagarðinum að Hofsstöðum. Smiðjurnar eru ókeypis enda styrktar af Barnamenningarsjóði og menningar - og safnanefnd Garðabæjar. Minnum á persónulegar sóttvarnir og skráning persónuupplýsinga þegar mætt er á staðinn er nauðsynleg.