• 24.9.2019, 16:00 - 18:00, Hönnunarsafn Íslands

Hönnunarskólinn fyrir 13-16 ára

Hönnunarskólinn, í samstarfi við Hönnunarsafn Íslands hefst 24. september nk.

Hönnunarskólinn, í samstarfi við Hönnunarsafn Íslands hefst 24. september nk.

Hefst: 24. september
Tími: Þriðjudaga · kl 16:00-18:00
Staðsetning: Hönnunarsafn Íslands
Lengd: 10 vikur
Kennslustundir: 20
Aldur: 13-16 ára
Kennarar: Sigríður Sigurjónsdóttir, Signý Þórhallsdóttir, Halla Hákonardóttir, Embla Vigfúsdóttir, Björn Steinar Blumenstein, Kristján Örn Kjartansson og Lóa Hlín Hjálmtýrsdóttir

Langar þig að kynnast því hvernig hönnuðir og hugmyndasmiðir vinna?

Í Hönnunarskólanum fá þáttakendur innsýn inn í störf og aðferðarfræði hönnuða.

Í gegnum samtöl, skissur og frumgerðir gefst innsýn inn í það hvað felst í því að vera arkitekt, spilahönnuður, vöruhönnuður, fatahönnuður og matarhönnuður.

Sjö hönnuðir koma að kennslu á námskeiðinu sem er byggt þannig upp að í fyrstu tvö skiptin er unnið arkitektaverkefni, næstu tvö spilahönnunarverkefni og þannig koll af kolli.

Verð:39.900 kr - skráning er á klifid.is