Hreinsunarátak Garðabæjar 25. apríl - 9. maí
Árlegt hreinsunarátak Garðabæjar hefst á Degi umhverfisins 25. apríl.
Nágrannar, íbúasamtök, félagasamtök, íþróttafélög og skólar eru hvattir til að taka þátt í hreinsunarátakinu með það að markmiði að Garðabær verði einn snyrtilegasti bær landsins.
Hópar sem vilja hreinsa svæði í sínu nærumhverfi geta sótt um þátttöku og fengið styrk í fjáröflunarskyni eða til að halda grillveislu í lok góðrar tiltektar.
Áhugasamir hópar geta haft samband við verkefnastjóra garðyrkjudeildar, s. 820 8574, lindajo@gardabaer.is.
Íbúar eru hvattir til að sýna gott fordæmi með því að taka nærumhverfi í fóstur og hlúa að því. Starfsmenn bæjarins munu hirða upp alla poka og annað eftir ruslatínslu bæjarbúa, hópa eða einstaklinga. Hægt er að nálgast poka í áhaldahúsinu við Lyngás 18 og þátttakendur eru hvattir til að flokka plast sérstaklega frá öðru rusli í glæran plastpoka.
Stóri plokkdagurinn 24. apríl
Stóriplokkdagurinn verður haldinn hátíðlegur fimmta árið í röð víðs vegar um allt land sunnudaginn 24. apríl frá kl. 9-16 og Garðbæingar eru hvattir til að taka þátt í plokkinu.
Götusópun
Hafist verður handa við götusópun á aðalgötum í apríl og í maí verða íbúðagötur sópaðar í bænum.
Vorhreinsun lóða 9.-20. maí
Garðbæingar eru hvattir til að hreinsa lóðir sínar í sameiginlegu átaki. Starfsmenn þjónustumiðstöðvar Garðabæjar og verktakar verða á ferðinni þessa daga og fjarlægja garðaúrgang sem settur hefur verið út fyrir lóðamörk.
Gróður á lóðum - leiðbeiningar um alhliða ræktun
Upplýsingar um hverfaskiptingu í vorhreinsun má sjá hér á vef Garðabæjar
Tökum öll þátt í að halda bænum okkar snyrtilegum!