• 16.11.2019, 12:00 - 15:00, Bókasafn Garðabæjar

Hreyfimyndasmiðja fyrir krakka

Laugardaginn 16. nóvember klukkan 12-15 býður Bókasafn Garðabæjar upp á Hreyfimyndasmiðju fyrir krakka á aldrinum 8-13 ára. 

Laugardaginn 16. nóvember klukkan 12-15 býður Bókasafn Garðabæjar upp á Hreyfimyndasmiðju fyrir krakka á aldrinum 8-13 ára. Umsjónarmaður námskeiðisins er Gunnar Örn Arnórsson Farið verður yfir það hvernig kvikmyndahandrit verður til, hvað gerist í tökum, hvað leikstjóri þarf að gera og starf klipparans. Einnig verður farið í hljóð-og litavinnslu. Eftir námskeiðið ættu krakkarnir að hafa meiri þekkingu á sjónrænum sögum.