Hvað finnst þér? Samtal um bæinn okkar - íbúafundur í Flataskóla
Samtal um bæinn okkar - íbúafundir í september 2022 með bæjarstjóra og sviðsstjórum Garðabæjar. Næsti fundur verður haldinn miðvikudaginn 14. september kl. 19:30 í Flataskóla.
- Farið yfir það sem íbúum liggur á hjarta – fyrirspurnir og umræður
- Kynning á helstu málefnum, s.s. skólamálum, fjölskyldumálum, umhverfismálum, og framkvæmdum í hverfunum
- Boðið upp á kaffi og veitingar
Hlekkur í útsendingu íbúafundar 14. september 2022
Næstu fundir:
Dagsetning/ fundarstaður | Hverfi |
---|---|
Miðvikud. 14. sept kl. 19:30-21:00 Flataskóli Viðburður á facebook |
Byggðir, Búðir, Bæjargil, Fitjar, Flatir, Garðatorg, Holt, Hæðir, Lundir, Móar, Mýrar, Tún |
Miðvikud. 21. sept kl. 19:30-21:00 Álftanesskóli |
Álftanes |
Þriðjud. 27. sept kl. 19:30-21:00 Sjálandsskóli |
Arnarnes, Akrahverfi, Ásar, Garðahverfi, Garðahraun/Prýði, Grundir, Hleinar, Hólar, Sjáland |
Hverfaskiptingin er leiðbeinandi, allir fundir eru opnir öllum og íbúar geta mætt á þann fund sem hentar best.
Allir fundir verða í streymi.
Hlakka til að taka samtalið við ykkur
Almar Guðmundsson, bæjarstjóri