Hvað finnst þér? Samtal um bæinn okkar - íbúafundur í Sjálandsskóla
Samtal um bæinn okkar - íbúafundir í september 2022 með bæjarstjóra og sviðsstjórum Garðabæjar. Fjórði fundur verður haldinn þriðjudaginn 27. september kl. 19:30 í Sjálandsskóla.
- Farið yfir það sem íbúum liggur á hjarta – fyrirspurnir og umræður
- Kynning á helstu málefnum, s.s. skólamálum, fjölskyldumálum, umhverfismálum, og framkvæmdum í hverfunum
- Boðið upp á kaffi og veitingar
Dagsetning/ fundarstaður | Hverfi |
---|---|
Þriðjud. 27. sept kl. 19:30-21:00 Sjálandsskóli Viðburður á facebook |
Arnarnes, Akrahverfi, Ásar, Garðahverfi, Garðahraun/Prýði, Grundir, Hleinar, Hólar, Sjáland |
Hverfaskiptingin er leiðbeinandi, allir fundir eru opnir öllum og íbúar geta mætt á þann fund sem hentar best.
Allir fundir verða í streymi.
Hlakka til að taka samtalið við ykkur
Almar Guðmundsson, bæjarstjóri