• 28.10.2021, 17:00 - 19:00, Urriðaholtsskóli

Íbúafundur í Urriðaholti

  • Séð yfir Urriðaholt. Ljósmynd: Þráinn Hauksson, Landslag

Aðalfundur íbúasamtaka Urriðaholts - Nágrannavarsla í Garðabæ - Málefni Urriðaholts

Fundur um málefni íbúa Urriðaholts og nágrannavörslu í Urriðaholti
Fimmtudaginn 28. október kl. 17:00-19:00 í anddyri Urriðaholtsskóla

  • Kl. 17:00 Aðalfundur íbúasamtaka Urriðaholts, opinn öllum íbúum hverfisins
  • Kl. 17:30 Nágrannavarsla í Garðabæ
    Gunnar Einarsson, bæjarstjóri Garðabæjar, býður gesti velkomna
    Fulltrúi frá lögreglu höfuðborgarsvæðisins kynnir tölfræði um þróun afbrota og góðar ábendingar um forvarnir og nágrannavörslu
    Sunna Sigurðardóttir, verkefnastjóri, kynnir innleiðingu á nágrannavörslu í Urriðaholti
  • Kl. 18:15 Málefni Urriðaholts, Gunnar Einarsson bæjarstjóri
    Fyrirspurnir og umræður

Íbúar í Urriðaholti sem og aðrir áhugasamir um málefni íbúa í Urriðaholti og nágrannavörslu í hverfinu eru hvattir til að mæta á fundinn. Heitt á könnunni.
Fundinum verður einnig streymt á Facebook síðu Garðabæjar.  
Viðburður á facebook síðu Garðabæjar.

Íbúasamtök Urriðaholts
Bæjarstjórinn í Garðabæ