Íbúafundur um stígaskipulag Garðabæjar
Íbúafundur vegna forkynningar á breytingu á 4. kafla í aðalskipulagi Garðabæjar.
Öll velkomin í Sveinatungu, Garðatorgi 7, miðvikudaginn 2. apríl, kl. 17:00
Viðfangsefni breytingartillögunnar er heildarendurskoðun á stígakerfi Garðabæjar og er áætluninni ætlað að vera til leiðbeiningar fyrir deiliskipulagsgerð, verkhönnun og uppbyggingu stíga í Garðabæ til framtíðar.
Markmiðið er að til verði stefna um vistvænar samgöngur og uppbyggingu stígakerfisins í þágu útivistar, lýðheilsu og umhverfisverndar, með öryggi að leiðarljós