Íbúafundur um stöðu uppbyggingar í Urriðaholti
Garðabær býður íbúum á fund um stöðu uppbyggingar í Urriðaholti og áform um lok hennar.
Á fundinum verður farið yfir stöðu uppbyggingar í hverfinu, undirbúning breytinga fyrir háholtið, bæði torg og aðliggjandi lóð Vinastræti 20-24.
Jafnframt verður farið yfir áform um að gera skógargarðinn aðgengilegri fyrir íbúa og frágang umhverfis gamla bæjarstæði Urriðakotsbæjarins.
Áætlað er að kynning taki um 45 mínútur en að henni lokinni verða fulltrúar Garðabæjar og Urriðaholts ehf. til svara um ofangreint og önnur skipulagsmál í hverfinu.
Öll velkomin í Urriðaholtsskóla, miðvikudaginn 11. mars kl 20:00.
