• 17.6.2025, 15:00, Hönnunarsafn Íslands

Innflutningsboð - KE&PB - grafískir hönnuðir í vinnustofudvöl

Í vinnustofudvöl á Hönnunarsafninu munu KE&PB að halda áfram að þróa verkefni sitt Skraf.

KE&PB er samstarf grafísku hönnuðanna Kötlu Einarsdóttur og Patreks Björgvinssonar. Þau kynntust í námi við Listaháskóla Íslands og útskrifuðust þaðan árið 2022. Þau deila áhuga á alþýðumenningu, handverki og efnismenningu heimilisins.Saman hafa þau unnið ýmis grafísk verkefni, nú síðast verkefnið Skraf en það er stafrófskerfi sem byggir á gömlu íslensku vefnaðarmynstri. Í vinnustofudvöl á Hönnunarsafninu munu KE&PB að halda áfram að þróa Skraf og finna snertifleti fyrir mynstrin í samhengi við eldhúsið.