• 27.2.2020 - 3.3.2020, Sveinatunga

Íslandsmót kvenna í skák

  • Sveinatunga - fjölnota fundarsalur bæjarins á Garðatorgi

Íslandsmót kvenna í skák hefst fimmtudagskvöldið 27. febrúar kl. 18 í Sveinatungu við Garðatorg 7 í Garðabæ.

Íslandsmót kvenna í skák hefst fimmtudagskvöldið 27. febrúar kl. 18 í Sveinatungu við Garðatorg 7 í Garðabæ.  Átta af tólf stigahæstu skákkonum landsins taka þátt. Áslaug Hulda Jónsdóttir, formaður bæjarráðs Garðabæjar setur mótið og leikur fyrsta leikinn.  

Mótið fer fram 27. febrúar – 3. mars nk. Teflt verður í tveim flokkum. Annars vegar í landsliðsflokki kvenna. Þar eiga keppnisrétt allar skákkonur með 1600 skákstig eða meira. Sigurvegarinn hlýtur sæmdarheitið Íslandsmeistari kvenna árið 2020. Hins vegar í áskorendaflokki kvenna. Hann er opinn fyrir allar skákkonur sem ekki ná 1600 skákstigum.

Keppendalistinn:
1.WGM Lenka Ptácníková (2099)
2.WFM Guðlaug Þorsteinsdóttir (2021)
3.Jóhanna Björg Jóhanndóttir (1933)
4.WIM Lisseth Acevedo Mendez (1849)
5.Tinna Kristín Finnbogadóttir (1838)
6.Hrund Hauksdóttir (1804)
7.Sigurlaug R. Friðþjófsdóttir (1690)
8.Sigríður Björg Helgadóttir (1682)

Mótið er haldið sameiginlega af Skáksambandi Íslands og Taflfélagi Garðabæjar sem fagnar 40 ára afmæli í ár. Beinar útsendingar verða frá landsliðsflokki.

Sjá nánar um mótið hér á vef Skáksambands Íslands. 

Vefsíða mótsins - þar má sjá nánari tímasetningar á umferðum mótsins.