• 23.9.2021 - 30.9.2021, Garðabær

Íþróttavika Evrópu #BeActive í Garðabæ 23.-30. september

  • BeActive Íþróttavika Evrópu

Íþróttavika Evrópu (European Week of Sport) er haldin 23. – 30. september ár hvert í yfir 30 Evrópulöndum. Fjölbreytt dagskrá í Garðabæ.

Markmiðið með Íþróttaviku Evrópu er að kynna íþróttir og almenna hreyfingu um alla Evrópu og sporna við auknu hreyfingarleysi meðal almennings.  Sjá einnig upplýsingar um dagskrá á Íslandi hér á vefnum Beactive.is. 
Fylgist líka með á fésbókarsíðu Beactive á Íslandi.

Dagskrá í Garðabæ í íþróttavikunni 

Félag eldri borgara í Garðabæ (FEBG):

Sjá líka fésbókarsíðu Jónshúss, félags- og íþróttastarfs eldri borgara í Garðabæ
og fésbókarsíðu Félags eldri borgara í Garðabæ.

  • Alla virka daga fer gönguhópur frá félagsmiðstöðinni Jónshúsi, Strikinu 6, kl. 10:00
    - Engin skráning allir velkomnir
  • 23. og 30. sept fimmtudag og 28. sept. þriðjudag kl. 9:30 - Qigong í Sjálandsskóla við Löngulínu
  • 23. og 30. sept fimmtudag og 28. sept. þriðjudag kl. 12:15 – leikfimi í ,,Bláa-salnum” í íþróttamiðstöðinni Ásgarði
  • 23. og 30. sept fimmtudag og 28. sept. þriðjudag kl. 13:00-14:00 – Boccia í íþróttamiðstöðinni Ásgarði
  • 24. sept. föstudag kl. 09:30 - dansleikfimi í Sjálandsskóla við Löngulínu
  • 27. sept. Mánudag kl. 11:00 - stólajóga í Kirkjuhvoli
  • 27. sept. Mánudag kl. 16:30 – Zumba Gold í Kirkjuhvoli
  • 28. sept. þriðjudag kl. 13:30 ,,Hvernig skrái ég mig á námskeið” -  félagsmiðstöðin Jónshús, Strikinu 6

Félag eldri borgara á Álftanesi:

  • 23. og 30. sept fimmtudaga og 28. sept þriðjudag kl. 13:00-14:00 sundleikfimi í Álftaneslaug við Breiðamýri

Stjarnan almenningsíþróttadeild:

  • 25. sept. laugardag kl. 9:30 – útivera, ganga opin öllum (Birna og Óli)
  • 27. sept. mánudag og 29. sept. fimmtudag leikfimi kvenna 8:00 og 17:00 í Ásgarði (Birna)
  • 23. og 30. sept. fimmtudaga og 28. sept. þriðjudag kl. 18:20 - Vatnsleikfimi í Sjálandslaug (Birna)
  • 27. sept. mánudag og 29. sept. fimmtudag leikfimi karla 17:50 og 18:40 í Ásgarði (Óli)
    Sjá einnig hér á vef Stjörnunnar.

Hlaupahópur Stjörnunnar:

Skokkhópur Álftaness:

Sundlaugin Álftanesi, við Breiðumýri:

  • 29. sept miðvikudag kl. 18:00-19:00 – SamFlot (Sigrún)

Annað opið til hreyfingar:

Íþróttafulltrúi Garðabæjar

Dagskrá í Garðabæ á facebook síðu Garðabæjar.