• 13.11.2025, 19:30, Bókasafn Garðabæjar

Jólabókaspjall bókasafnsins

Viðburður þessi er hluti af Löngum fimmtudögum á bókasafninu í nóvember. Sigríður Hagalín, Lilja Sigurðardóttir og Hrannar Bragi Eyjólfsson mæta.

Rithöfundar ársins eru þau Sigríður Hagalín, Lilja Sigurðardóttir og Hrannar Bragi Eyjólfsson Brynhildur Björnsdóttir stýrir spjallinu. Umræður, léttar veitingar, huggulegheit og jólaljós.

Sigríður Hagalín Björnsdóttir les úr bók sinni Vegur allrar veraldar - skálkasaga, sem er sjálfstætt framhald Hamingju þessa heims - riddarasaga (2022), þar sem koma við sögu Ólöf ríka og aðrar magnaðar persónur og atburðir 15. aldar; aldarinnar sem gleymdist í Íslandssögunni. Einnig var kvikmyndin Eldarnir – ástin og aðrar hamfarir sem er byggð á samnefndri skáldsögu Sigríðar að hefja sýningar í kvikmyndahúsum landsins og hefur fengið góða dóma.

Lilja Sigurðardóttir les úr bók sinni Ɐlfa. Árið 2052 ríkir friður og velsæld. Í 25 ár hefur Ɐlfa stýrt samfélaginu – gervigreind sem nýtir sér
gríðarlegt gagnamagn til að leysa úr öllum málum á sem bestan hátt fyrir alla.
Á heimili Sabínu og Mekkínar er stór dagur runninn upp. Júlíus sonur þeirra er að verða sextán
ára og Þá fær hann grædda í sig örflögu til að tengjast Ɐlfa beint eins og aðrir, og eins fær hann að vita hvað honum er ætlað að fást við í framtíðinni, ákvörðun sem Ɐlfa byggir á ítarlegum upplýsingum um hæfni hans og eiginleika. En þegar Birkir, bróðir Sabínu, drukknar við undarlegar aðstæður er ljóst að allt er ekki eins og það sýnist.

Hrannar Bragi Eyjólfsson les úr bók sinni Séra Bragi: Ævisaga. Í þessari ríkulega myndskreyttu ævisögu er rakin ótrúleg ævi Séra Braga Friðrikssonar brautryðjandans sem vígðist fyrstur íslenskra presta til þjónustu meðal Vestur-Íslendinga í Kanada, lagði grunn að æskulýðsstarfi Reykjavíkur og Þjóðkirkjunnar. Séra Bragi stofnaði Ungmennafélagið Stjörnuna, æskulýðs- og skátafélög og var á meðal þeirra sem byggði samfélag frá grunni í Garðabæ. Hann var kallaður „faðir Garðabæjar“ og var útnefndur fyrsti heiðursborgari bæjarins.