Jóladagur foreldrafélags Álftanesskóla
Jóladagur foreldrafélags Álftanesskóla verður haldinn sunnudaginn 8. desember kl. 14-16 í íþróttamiðstöðinni á Álftanesi. Ljósin verða tendruð á jólatrénu á Álftanesi strax að lokinni dagskrá innandyra eða um kl. 16.10.
Jóladagur foreldrafélags Álftanesskóla verður haldinn sunnudaginn 8. desember kl. 14-16 í íþróttamiðstöðinni á Álftanesi.
Jóladagurinn verður með breyttu sniði í ár, framlög barnanna verða höfð í forgrunni. Nemendur verða með spennandi bása þar sem hægt verður að styrkja börnin fyrir komandi vetrarstarf og/eða til góðgerðamála. Til sölu verða meðal annars vörur fyrir jólin eins og kerti, servíettur og jólanammipokar o.fl.
Ljósin á jólatrénu á Álftanesi verða tendruð strax að lokinni dagskrá innandyra eða um kl. 16.10.
Á dagskrá verður m.a.
- Tískusýning hjá 5. bekk
- Myndlistarsýning hjá skólahópi leikskólanna Holtakots og Náttúrukots
- Lóa Kolbrá og Þórdís, nemendur í 10. bekk, syngja nokkur lög
- Nemendur í 10. bekk verða með kaffihús
- Hljómsveitin vinsæla Hipsumhaps mun svo taka nokkur lög en hana skipa fyrrum nemendur skólans Fannar Ingi og Jökull Breki.
Allir velkomnir
Foreldradagur - viðburður á fésbókarsíðu foreldrafélags Álftanesskóla
Ljósin tendruð á jólatrénu á Álftanesi - viðburður á fésbókarsíðu Garðabæjar.